Opnunartími setursins:
     1. júní til 1. september
     Frá kl: 11.00 - 18.00

 

Hve margir fóru?

Júníus H. Kristinsson segir í bók sinni Vesturfarar sem kom út í Reykjavík 1983 að 14.268 Íslendingar hafi flust til Norður-Ameríku milli 1870 og 1914. Taka verður tillit til að þessi tala tekur aðeins mið af þeim sem voru skráðir og ljóst er að ekki hafa allar skrár varðveist auk þess sem margir komu sér með einum og öðrum hætti hjá því að láta skrá sig. Fullvíst má því telja að fjöldi brottfluttra hafi verið mörgum þúsundum fleiri. Almennt er talið að milli 15000 til 20000 Íslendingar hafi flust á brott eða um 20-25%  landsmanna.

þriðjudagur 7 september 09 2010