Opnunartími setursins:
     1. júní til 1. september
     Frá kl: 11.00 - 18.00

 

Stephansstofa

Í stofunni eru lagðar fram upplýsingar um ævi og störf Klettafjallaskáldsins, bækur með kvæðum hans og bókmenntaleg umfjöllun um þau. Sýningin var unnin af Sigríði Sigurðardóttur, safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga með aðstoð Viðars Hreinssonar, sem ritað hefur tveggja binda ævisögu þessa mikla skáldjöfurs. Ævi Stepans G. er gott dæmi um lífsreynslu landnema þar sem æskuárin liðu á Íslandi og við tók erfitt ferðalag til Vesturheims. Þegar þangað var komið varð tími aðlögunar, flutninga á milli byggðalaga og svæða og síðan löng og hörð lífsbarátta.

þriðjudagur 7 september 09 2010